Prenzlauer Berg

Fjárfestingar hverfi í Berlín

Eitt vinsælasta íbúðarhverfi Berlínar er Prenzlauer Berg en þar hafa flest hús verið endurgerð. Í hjarta þessa borgarhluta er Kollwitzplatz sem hefur þróast í að vera mikilvægur borgarhluti með stöðugt aukinni eftirspurn eftir húsnæði.

Við, sem fjárfestingar og þjónustu teymi Berlínar, erum sérhæfð í að selja sögufrægar, virðulegar og gamlar byggingar í kringum Kollwitzplatz.

Sem ein besta staðsetning í höfðuborginni, býður hverfið upp á frábærar samgöngur. Nálægðin við Berlín-Mitte með heimsfrægum byggingum og við flugvöllinn Tegel og útivistarsvæðin í kringum Berlín, uppfyllir mikilvægan hluta af þeim kröfum sem fólk gerir á þessum annasömum tímum.

Augljós sönnun á gæðum hverfisins er fjöldi menningar- og listviðburða sem eiga sér stað og móta það.

Í mörg ár hefur Kollwitzplatz laðað til sín fjölda innlendra og alþjóðlegra listamanna sem hefur gert Pfefferberg og auðvitað Kulturbrauerei (Menningarbrugghús) með leikhúsum, kvikmyndasölum og litríkum sýningum að mjög vinsælum stað til að hittast á.

Vinsældir Kollwitzplatz einkennast af fjölda lítilla gallería, verslunum, fjölbreyttum kaffihúsum, börum og veitingahúsum. Hverfið heillar með frumleika sínum og það hreif jafnvel Bill Clinton fyrrum forseta þegar hann snæddi hádegisverð í veitingahúsinu Gugelhof.

Kollwitzplatz hefur orð fyrir að vera fjölskylduvænt hverfi því þar er fjöldi barnaleikvalla, leikskóla og almenningsgarða.  Mikið er lagt upp úr umhirðu og ræktun grænna svæða sem blómstra í allri sinni dýrð á sumrin. Þau bjóða upp á möguleika til leikja, hvíldar og að grilla auk margs annars.

En þetta græna hverfi mótast þó mest af  heillandi sögulegum, gömlum byggingum með verðmætum og einstökum framhliðum húsa, en mörg þeirra hafa síðustu ár verið gerð upp af mikilli umhyggju. Við bjóðum þessar einstaklega verðmætu fasteignir með jugendstíl sjarma til fjárfestingar eða til eigin afnota.

Kollwitzplatz mun einnig í framtíðinni vera framúrskarandi íbúðahverfi bæði fyrir unga og gamla og er án efa fjárfestingarinnar virði.

 

Information on 030/8020200-20